Fyrirtækið var stofnað 1. ágúst 2005, undirritaður er eigandinn og hefur hann starfað við hvaðeina varðandi tölvur og tölvutengdan búnað sl.12 ár.
Prófgráður frá Microsoft:
MCP (Microsoft Certified Professional)
MCSA (Microsoft Certified Systems Administrator)
Prófgráður frá CompTia:
A+
Network+
Öllum er þó ljóst að skólagangan ein gerir engan að snillingi, menntun í skóla er lítið annað en góður grunnur. Til viðbótar góðri grunni er starfsreynslan dýrmætust. Viðfangsefni okkar hafa spannað allt frá almennum tölvuviðgerðum upp í rekstur stórra kerfa með yfir 200 útstöðvum, uppsetningu á netþjónum og hvers konar öðrum netkerfum og hugbúnaði.
Við getum tekið að okkur stór verkefni jafnt sem smá. Þú skalt því ekki hika við að hafa samband ef eitthvað amar að í tölvuvæðingu fyrirtækisins.
Oft er talað um að tölvuþjónusta sé dýr, ef rétt er staðið að hlutunum er hún það ekki, í langflestum tilfellum tekur stuttan tíma að leysa vandamálin. Því miður eru þess dæmi að viðgerðarmenn glími við bilanir jafnvel klukkutímum saman án þess að hafa fulla þekkingu til. Ef rukkað er fyrir þannig „tilraunastarfsemi“ er ekki von á góðu, þá er kostnaðurinn fljótur að hlaðast upp, og lyktir málsins auk þess oft þær að vandamálið er óleyst.
Við hvetjum því alla sem þurfa á tölvuþjónustu að halda að kynna sér af fremsta megni hæfni þess sem kalla á til þegar bilun verður og viðgerðar er þörf.
Annað sem við verðum nokkuð varir við er að verið er að selja fólki og fyrirtækjum tölvur og búnað sem engan veginn hentar þeirra viðfangsefni, oft eru keyptir „eiginleikar“ sem ekkert er við að gera og nýtast aldrei en kosta mikið fé umfram það sem hefði þurft að vera.
Þetta er sorglegt upp á að horfa því líftími tölvubúnaðar er mjög stuttur og því ekki um að ræða að kaupa eitthvað öflugt í þeirri von að það nýtist seinna, það er nokkuð víst að þegar að því kemur er komin önnur einfaldari, öflugri og oft ódýrari lausn.
Ástæðan fyrir því að kaupendur lenda í þessum óþarfa fjárútlátum er í sumum tilfellum ákafi sölumanna í að selja sem mest en í öðrum tilfellum er um hreina vanþekkingu á viðfangsefni og búnaði að ræða.
Við hvetjum alla til að leita ráða. Það er engin leið fyrir fólk í erli dagsins að fylgjast með því sem er að gerast í þessum geira, þróunin er svo ör.
Viðskiptavinir okkar eru allt saman gott og þakklátt fólk sem gaman er að vinna fyrir og ekki er síst ánægjulegt að vera þeim til aðstoðar áður en endanleg ákvörðun er tekin um kaup á tölvum og búnaði þeim tengdum, þar hafa oft sparast umtalsverðir fjármunir.
-Ríkharður Brynjólfsson
